AnebyhusGruppen – einingarhús
hágæða timburhús frá Svíþjóð

AnebyhusGruppen einingarhúsin eru framleidd eftir ströngustu kröfum. Þau eru aðlöguð að íslenskum aðstæðum í nánu samstarfi við verkfræðinga hér heima og erlendis. Húsin eru vottuð og standast stöngustu kröfur til veðurs og einangrunar.

Allir viðir húsins eru sérvaldir og eru styrkleikaflokkar þannig að viðurinn uppfyllir hæstu gæðakröfur sem gerðar eru til húsbygginga.

Einingarnar koma forsmíðaðar þannig að einfalt er að reisa húsið. Til dæmis má nefna að það tekur einungis um 5-8 daga að gera 150 til 180 fermetra hús á einni hæð fokhelt.

Nákvæmar vinnuteikningar sem eru auðlesnar þannig að uppsetning er gerð eins einföld og frekast er hægt fyrir kaupendur.

Einnig bjóðum við að sjálfsögðu upp á uppsetningu að hluta eða öllu leyti.

Við höfum einsett okkur að skapa fólki tækifæri til að byggja sér draumahús þar sem gæði og sanngjarnt verð fara saman.

 

Hægt er að velja úr fjölda teikninga af stöðluðum íbúðarhúsum.

Einnig er hægt að breyta stöðluðum teikningum og aðlaga húsið að þörfum hvers og eins.

Húsin eru fáanleg ýmist með frístandandi-, sambyggðum- eða innbyggðum bílskúr.

Myndabæklingurinn frá Teema sýnir aðeins hluta af þeim möguleikum sem eru í boði.